Kokkur Ársins 2018 er Garðar Kári Garðarsson Eleven Experience- Deplar Farm aðstoðarmaður Garðars var Harpa Sigríður Óskarsdóttir

Keppendur í úrslitum voru

Bjartur Elí Friðþjófsson, Grillmarkaðnum

Garðar Kári Garðarsson, Eleven Experience- Deplar Farm

Iðunn Sigurðardóttir, Matarkjallaranum

Sigurjón Bragi Geirsson, Garra

Þorsteinn Geir Kristinsson, Fiskfélaginu

Keppnin fór fram í Hörpu þar sem fjöldi gesta hafa í allan dag fylgst með þar sem kokkarnir elduðu keppnismáltíðina í IKEA eldhúsum með hráefni frá Nettó. Lokasprettinn fór fram samhliða keppninni veisla fyrir gesti sem tryggðu sér miða á Kokkalandsliðskvöldverð og skemmtun. Keppendur háðu harða baráttu um titilinn eftirsótta. Um val sigurvegarans sá 11 manna dómnefnd. Yfirdómari var Christopher W Davidsen frá Noregi. Borgarstjóri Dagur B Eggertsson krýndi Kokk ársins 2018 í lok kvöldsins.

Christopher yfirdómari er margverðlaunaður í keppnismatreiðslu og hefur meðal annars unnið til silfurverðlauna í hinni þekktu Bocuse d‘Or keppni, hafði þetta um keppnina að segja: „Það er greinilegt að keppendur koma vel undirbúnir til leiks og samkeppnin er hörð, ég verð að hrósa þessum ungu íslensku kokkum fyrir þeirra framlag og er sérstaklega hrifinn af Garðari Kára sem kom og heillaði dómnefndina með sínum flotta mat og faglegu vinnubrögðum. Ísland er hágæða matarland og íslenskir kokkar standa sig afar vel í alþjóðlegum samanburði svo sem í alþjóðlegum matreiðslukeppnum“.