Kokkur Ársins 2018

Kæru félagar í Klúbbi Matreiðslumeistara. Laugardaginn 24. Febrúar er einn af okkar stóru dögum þar sem við erum sýnilegir og mikið áberandi. Keppnin Kokkur Ársins 2018 fer fram í Hörpu nánar tiltekið í Flóa. Mikið er lagt í keppnina og margir búnir að leggja mikið á sig til að gera þetta sem glæsilegast. Nú er komið að okkur félögunum að láta sjá okkur í hátíðarkokkagöllunum okkar. Gaman væri að sjá sem flesta en keppnin hefst 13:30. Frá 13:00-18:00 verður opið hús þar sem við getum látið ljós okkar skína og spjallað við fólk. 18:00 hefst svo fordrykkur og 19:00 hefst borðhald. Fjögurra rétta máltíð frá Kokkalandsliðinu verður í boði og væri gaman að  sjá sem flesta á svæðinu til að gera viðburðinn sem glæsilegastan. Klukkan 22:45 verður svo upplýst hver verður Kokkur Ársins 2018.

 

Virðingarfyllst

Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara