Klúbbur matreiðslumeistara velur Kokk ársins 2017 í samvinnu við Nettó og IKEA.

Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu í dag 23. September.

Keppendur sem munu keppa um titilinn Kokkur ársins 2017.

  • Víðir Erlingsson Bláa Lónið
  • Rúnar Pierre Heriveaux Grillið Hótel Saga
  • Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm / Strikið
  • Hafsteinn Ólafsson             Sumac Grill + Drinks
  • Bjarni Viðar Þorsteinsson Sjávargrillið

Úrslitakeppnin fer fram í Flóa í Hörpu laugardag 23.september, Keppendur elda 3ja rétta matseðil úr svokallaðri leyni körfu. Þ.e. keppendur fá að vita deginum áður hvaða hráefni eru í boði og hafa svo 5 klst til að undirbúa matinn. Húsið er opið fyrir alla gesti kl: 12 – 18, eftir það er einungis opið fyrir gesti sem hafa tryggt sér miða á Kokkalandsliðskvöldverð samhliða keppninni þar sem Gummi Ben, Eyþór Ingi og landsliðið munu sjá um stemninguna.

Um val sigurvegarans sér fjölskipuð dómnefnd sem fylgir eftir vinnubrögðum keppenda í þaula og smakkar allan matinn. Yfirdómari er Krister Dahl frá Svíþjóð.  Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar krýnir sigurvegarann í lok kvölds um kl 23:00.

Upplýsingar veita:

Björn Bragi Bragason. Forseti Klúbbs matreiðslumeistara

[email protected] og sími 692-9903

Hafliði Halldórsson. Dómari í keppninni

[email protected] og sími 7728228