Klúbbur matreiðslumeistara hefur valið Kokk ársins 2017 í samvinnu við Nettó og IKEA.

Kokkur ársins 2017 er:

Hafsteinn Ólafsson Sumac Grill + Drinks

Efstu þrjú sætin raðast sem hér segir:

• 1. Sæti     Hafsteinn Ólafsson Sumac Grill + Drinks

• 2. Sæti     Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm / Strikið

• 3. Sæti     Víðir Erlingsson Bláa Lónið

Keppendur í úrslitum sem kepptu um titilinn Kokkur ársins 2017.

• Víðir Erlingsson                                  Bláa Lónið

• Rúnar Pierre Heriveaux                      Grillið Hótel Saga

• Garðar Kári Garðarsson                     Deplar Farm / Strikið

• Hafsteinn Ólafsson                            Sumac Grill + Drinks

• Bjarni Viðar Þorsteinsson                  Sjávargrillið

 Keppnin fór fram fyrir fullum sal í Hörpu þar sem fjöldi gesta fylgdust með keppninni þar sem kokkarnir elduðu keppnismáltíðina í IKEA eldhúsum með hráefni frá Nettó.  Samhliða keppninni var veisla fyrir gesti sem tryggðu sér miða á Kokkalandsliðskvöldverð og skemmtun. Keppendur háðu harða baráttu um titilinn eftirsóttta og naumt var á munum á milli efstu manna. Um val sigurvegarans sá fjölskipuð 11 manna dómnefnd.  Yfirdómari var Krister Dahl frá Svíþjóð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar krýndi Kokk ársins í lok kvölds.

Krister Dahl yfirdómari sem er margverðlaunaður í keppnismatreiðslu og stýrir eldhúsum Gothia Towers í Gautaborg þ.m.t. 1 stjörnu Michelin veitingahúsinu Upper House hafði þetta um keppnina að segja „Það er greinilegt að keppendur koma vel undirbúnir til leiks og samkeppnin er hörð, ég verð að hrósa þessum ungu íslensku kokkum fyrir þeirra framlag og er sérstaklega hrifinn af sigurvegaranum Hafsteini Ólafssyni sem kom og heillaði dómnefndina með sínum flotta mat og faglegu vinnubrögðum. Ísland er svo sannarlega komið á kortið sem hágæða matarland og íslenskir kokkar standa sig afar vel í alþjóðlegum samanburði t.d. í alþjóðlegum matreiðslukeppnum“.