Það styttist í Ólympíuleika í matreiðslu sem fara fram í október.

Kokkalandsliðið keppir í köldu borði/Culinary Art 23. október og í heitum þriggja rétta mat/Restaurant of Nations 25. október.

Kokkalandsliðið lauk síðustu æfingu fyrir sumarfrí um síðustu mánaðarmót og staðan er afar góð, liðið afburða vel mannað og liðsandinn einstakur.

Næsta æfing á dagskrá upp úr 20. ágúst.

Áfram Ísland!

 

Með kærri kveðju
Stjórn KM