Næst komandi laugardag þann 28. maí verður fjölskyldudagur KM haldin í annað sinn.
Mæting er klukkan 12:00 á Kaffi Flóru og geta menn keypt sér smurbrauð og annað góðgæti á staðnum.

Því næst er að fara með börnin útí húsdýragarð um kl 13:00.
Klúbburinn býður öllum félögum, mökum og börnum í garðinn, ásamt því að gefa börnunum dagpassa.
Munið að tilkynna hverra manna þið eruð við innganginn.

Vonumst eftir því að sjá sem flesta.

Þökkum kærlega fyrir liðið starfsár og vonumst eftir að sjá sem flesta á félagsfund okkar í septemer.

Kveðja
Viðburðanefndin & Stjórnin