Klúbbur matreiðslumeistara og Kokkalandsliðið hefur endurnýjað samstarfssamning sinn við Ásbjörn Ólafsson ehf. Það er því ánægja að tilkynna að Kokkalandsliðið og Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara mun klæðast Kentaur kokkafatnaði í næstu keppnum. Einnig munu keppendur í Kokkur Ársins klæðast Kentaur kokkafatnaði. Hvetjum við alla að kynna sér Ásbjörn Ólafsson ehf og það vöruúrval sem þeir hafa upp á að bjóða http://www.asbjorn.is einnig er Ásbjörn Ólafsson með á Facebook https://www.facebook.com/asbjornolafssonehf

Kentaur er svo með glæsilega heimasíðu þar sem hægt er að kynna sér vöruúrvalið hér https://www.kentaur.com/en-us/international

 

Á myndinni eru frá vinstri Björn Bragi Bragason forseti Klúbbs Matreiðslumeistara og Unnur Gréta Ásgeirsdóttir frá Ásbirni Ólafssyni