Félagar okkar þeir Hafliði Halldórsson og Jakob H Magnússon eru þessa dagana að  dæma í matreiðslukeppnum úti í hinum stóra heimi. Hafliði er yfirdómari í Matreiðslumanni ársins í Noregi sem haldin er í Bergen. Jakob er í Poznan í Póllandi að dæma í matreiðslumaður ársins þar í landi. Við óskum félögum okkar góðs gengis við þessi metnaðarfullu verkefni.