Íslenska kokkalandsliðið vann til gullverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Stuttgart í þýskalandi í gær. Þetta var fyrri keppnisgreinin af tveimur sem liðið keppir í þetta árið svo kallað „Chefs Table“ og því fyrsta gullverðlaunin á þessum Ólympíuleikum.

„Ég er ótrúlega ánægður og þakklátur. Landsliðið hefur lagt ótrúlega mikið á sig bæði í undirbúningi og keppninni hérna úti og þau uppskera glæsilega“. Segir Björn Bragi Bragason, Forseti Klúbbs matreiðslumanna sem er úti í Stuttgart með liðinu. „Þetta hefði þó ekki verið hægt án allra þeirra sem leggja okkur lið í að komast hingað út. Ég verð sérstaklega að þakka Matarauði, Íslandsstofu, Ísey skyr og MS sem hafa verið með okkur í þessu verkefni og gert okkur kleift að ná þessum árangri“ 

Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu 8 mánuði fyrir keppnina. Hátt í fjögur tonn af búnaði var sendur til Þýskalands en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það hráefnið sem flytja þarf á staðinn en Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina. 

Í Chef´s table er framreiddur 7 rétta hátíðarkvöldverður fyrir 10 manna borð, auk tveggja dómara. Kvöldverðurinn samanstendur m.a. af fiskréttafati, pinnamat, vegan rétt, lambakjöti og desert. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.